Portúgalskir blikksmiðir á smánarlaunum

 Stjörnublikk skekkir alla samkeppni, segja forsvarsmenn annarra blikksmiðja   Frá því í haust hefur hópur portúgalskra blikksmiða starfað hér á landi á vegum fyrirtækisins Stjörnublikks hf. Þeir hafa verið hér með hléum en voru á annan tug þegar flest var. Launataxtar þeirra eru langt undir markaðslaunum á Íslandi og vera þeirra hefur ekki verið tilkynnt viðeigandi stjórnvöldum eins og skylt …

Iðnnám er hornreka í menntakerfinu

Niðurstöður tveggja viðamikilla rannsókna valda áhyggjum   Iðnnám á Íslandi á undir högg að sækja og þykir óæðra bóknámi. Þetta má lesa út úr tveimur viðamiklum könnunum sem komu út á fyrri hluta þessa árs.   Í könnun Félagsvísindastofnunar um ungt fólk og framhaldsskólann, sem kom út í febrúar, kemur fram að sex af hundraði þeirra sem fæddust árið 1975 …

Uppgangur í Skagafirði

Páll Sighvatsson formaður Iðnsveinafélags Skagafjarðar segir að Skagafjörður eigi framtíðina fyrir sér  – Ég held að hér á Sauðárkróki séu menn tiltölulega sáttir. Hér er ekkert atvinnuleysi og hér hefur verið uppgangur. Ríkisvaldið hefur flutt hingað tvær stofnanir, sem hefur mikið að segja fyrir mannlífið á þessum slóðum. Iðnaðarmenn sem hér starfa hafa haft nóg að gera, segir Páll Sighvatsson …

Evrópa er komin á dagskrá

  Aldrei fór það svo að Evrópumálin kæmust ekki á dagskrá hér á landi. Davíð Oddsson forsætisráðherra, sem ekki hefur séð ástæðu til þess að ræða mikið um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu, varpaði skyndilega sprengju inn í samfélagið með umdeildri skoðanakönnun og enn umdeildara sjónvarpsviðtali. Hvað sem fyrir honum vakti með þessu sprengjukasti þá tókst honum að setja málið …

Alþýðusambandið hefur náð vopnum sínum

Jafnvægi í hagkerfinu næstu misseri Sá stöðugleiki sem náðist þegar tókst fyrir atbeina Alþýðusambands Íslands að halda verðlagi neðan rauðu strikanna endurspeglar jafnvægi í hagkerfinu og allar forsendur benda til þess að verðbólga verði tiltölulega lág næstu misseri. Alþýðusambandið kemur sterkt út úr þessum slag og segja má að það hafi náð vopnum sínum, svipað og gerðist þegar þjóðarsátt náðist …

Ráðist gegn vinnuslysum

Það hefur valdið mönnum áhyggjum að undanfarin ár hefur slysatíðni verið hærri hjá starfsmönnum í málm- og byggingariðnaði en hjá öðrum iðnaðarmönnum. Á síðasta Samiðnarþingi var samþykkt að tekið skyldi á þessu vandamáli. Samtök iðnaðarins hafa léð máls á að leggja málinu lið og leitað hefur verið til Vinnueftirlitsins eftir nauðsynlegum upplýsingum um hollustuhætti og aðbúnað á vinnustöðum. Einnig hefur …

Úr skilaboðaskjóðu formannsins

Á undanförnum mánuðum og vikum hafa orðið mikil umskipti í íslensku þjóðlífi. Ástand og horfur í efnahagsmálum eru með allt öðrum hætti en var fyrir minna en hálfu ári. Átak verkalýðshreyfingarinnar gegn verðbólgunni gekk upp. Rauðu strikin héldu. Allt þetta gefur okkur tilefni til að ganga til móts við sumarið með bros á vör. Man einhver hvernig ástandið var í …

Frjálst markaðskerfi getur ekki verið án verkalýðshreyfingar

Fyrir nokkrum mánuðum stefndi í óðaverðbólgu og hríðversnandi lífskjör hér á landi og stjórn efnahagsmála var að sigla í strand. Það var við þessar aðstæður sem Alþýðusambandið greip í samstarfi við landssamböndin inn í atburðarásina og nú blasir árangurinn við. Allt bendir til að hér komist á stöðugleiki og að verðbólgan verði hliðstæð og í samkeppnislöndunum í árslok. Þessum árangri …

Könnun á heilsu og vellíðan iðnaðarmanna

Menn bera sig vel en einkenni  um álag og streitu eru algeng   Könnun sem gerð var meðal byggingarmanna og málmiðnaðarmanna nú á haustdögum leiðir í ljós að íslenskum iðnaðarmönnum líður almennt vel í vinnunni. Þegar betur er að gáð hvílir þó skuggi á þessari mynd því að stór hluti þeirra sem spurðir voru kvaðst ekki fá nógu mikinn svefn …

Batnandi samkeppnisstaða skipaiðnaðar

Nýsmíði til útflutnings hafin á ný eftir langt hlé   Ýmis teikn eru á lofti um að vænta megi betri tíðar í skipasmíðaiðnaði Íslendinga á næstu árum, ef marka má nýútkomna skýrslu um samkeppnisstöðu greinarinnar. Það sem einkum glæðir vonir manna er að opinber stuðningur við skipasmíðastöðvar í Evrópu er að leggjast af. Þá ber það við að í lok …