Launabreytingar 1. janúar 2022 Frá 1.1.2022 tekur gildi einhliða ákvörðun starfsmanna í kosningu, þar sem meirihluti ræður, um að stytta vinnutímann. Ákvæðið á við ef ekki er búið að semja um vinnutímastyttingu í samræmi við grein 3.1.2. í kjarasamningi um styttingu vinnutímans. Grein 5.13 í kjarasamningum Fagfélaganna og SA: Staðlaður, valkvæður fyrirtækjaþáttur (gildir frá 1.1.2022) Hafi ekki verið gert samkomulag …
Fjarvist frá vinnu vegna COVID-19 fellur undir veikindarétt
Að gefnu tilefni vill Alþýðusamband Íslands taka fram, að launafólk sem sett er í sóttkví eða sem gert er að læknisráði að halda sig heima við og umgangast ekki vinnufélaga eða annað fólk í umhverfi sínu vegna þess það sé annað af tvennu sýkt af COVID-19 eða sé hugsanlegir smitberar hans, er að mati ASÍ óvinnufært vegna sjúkdóms eða vegna …
Faxaflóahafnir samþykktu kjarasamning
Félagsmenn hjá Faxaflóahöfnum samþykktu kjarasamning Samiðnar sem undirritaður var 24. febrúar með öllum greiddum atkvæðum. >>> Sjá samninginn.
Ef vinna fellur niður vegna veðurs
Bendum á í tilefni af slæmum veðurspám að ef vinna fellur niður vegna óhagstæðs veðurs eða annarra orsaka, sem starfsmaður á ekki sök á, greiðist fullt dagvinnukaup, en heimilt er þegar þannig stendur á að fela starfsmannai önnur störf. Sjá gr. 2.6 í kjarasamningi SA
Vilt þú setjast í stjórn Birtu lífeyrissjóðs?
Valnefnd Birtu lífeyrissjóðs auglýsir eftir frambjóðendum til þess að taka sæti í stjórn sjóðsins kjörtímabilið 2020 til 2022. ulltrúaráð launamanna Birtu kýs tvo stjórnarmenn og einn varamann til tveggja ára í stjórn sjóðsins. Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn umsókn í formi útfyllts framboðseyðublaðs og senda það á netfangið valnefnd@birta.is fyrir kl. 16.00 fimmtudaginn 13. …
Niðurstöður kosninga hjá ríkinu og Reykjavíkurborg
Kosningum er nú lokið um kjarasamninga Samiðnar við Reykjavíkurborg og ríkið. Reykjavíkurborg: Kjörsókn var 78%.> Já sögðu 96,9%> Nei sögðu 3,1%> Engir auðir eða ógildir. Samningurinn telst því samþykktur – Sjá samninginn Ríkið: Kjörsókn var 38,5%.> Já sögðu 60%> Nei sögðu 33,33%> Auðir voru 6,67% Samningurinn telst því samþykktur – Sjá samninginn
Kosning um kjarasamning við ríkið
Hér að neðan er tengill á kosningu um kjarasamning Samiðnar við ríkið frá 21. janúar en kynningarfundur um samninginn verður miðvikudaginn 29. janúar kl. 17 í Húsi Fagfélaganna að Stórhöfða 31 (gengið inn Grafarvogsmegin). Kosningu lýkur miðvikudaginn 5. febrúar kl. 16. >> Sjá kynningu á samningnum >>> Kjósa hér >> Sjá samninginn í heild
Nýr kjarasamningur við Reykjavíkurborg
Samningar tókust á gær við Reykjavíkurborg um nýjan kjarasamning með gildistíma frá 1. apríl 2019 til 31. mars 2023. Upplýsingar um kynningu og atkvæðagreiðslu á hinum nýja samningi verða settar á vefinn þegar þær liggja fyrir. >> Sjá samninginn
Samningur undirritaður við ríkið – kynningarfundur 29. jan. kl. 17
Viðræðunefnd Samiðnar undirritaði í dag samkomulag við ríkið um breytingar og framlengingu á gildandi kjarasamningi frá 1. apríl 2019 til 31. mars 2023. Kynningarfundur um samninginn verður haldinn miðvikudaginn 29. janúar kl. 17 í Húsi Fagfélaganna að Stórhöfða 31 og verður honum streymt á netinu – smella hér. >> Sjá samninginn
Óskum félagsmönnum okkar og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári
Skrifstofa Samiðnar verður lokuð á aðfangadag og gamlársdag.