Nýtt verkfæragjald blikksmiða 1. júlí sl.

Samkvæmt kjarasamningi Samiðnar og Samtaka atvinnulífsins (SA), breytist verkfæragjald blikksmiða þann 1. janúar og 1. júlí ár hvert til samræmis við breytingu á byggingarvísitölu. Verkfæragjaldið breytist úr kr. 200,03 (01.01.2022) í kr. 215,23 frá og með 1. júlí sl. miðað við 36,25 virkar vinnustundir á viku.

Golfmóti iðnfélaganna aflýst

Vegna tæknilegra mistaka við skráningu hjá Golfklúbbi Akureyrar (GA) er golfmóti iðnfélaganna, sem halda átti í haust, aflýst.

Lokun vegna sumarleyfa

Skrifstofa Húss Fagfélaganna verður lokuð frá 18.- 29. júlí 2022 vegna sumarleyfa starfsfólks. Í neyðartilvikum er hægt að senda tölvupóst á kjaramal@fagfelogin.is sé um kjaramál að ræða.

Frumvarp um breytingar á lögum um skyldutryggingar lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða

Þann 15. júní samþykkti Alþingi frumvarp um breytingar á lögum um skyldutryggingar lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Alþingi lögfesti að lágmarksiðgjald til lífeyrissjóðs fari úr 12% í 15,5% til samræmis við hækkun í samningi ASÍ og SA frá í janúar 2016. Samhliða hækkun lágmarksiðgjalds er hækkun lágmarkstryggingaverndar lögfest að hún verði 72% meðalævitekna miðað við 40 ára inngreiðslutíma fyrir þá sem …

Lífeyrismál- Mótvægisaðgerðir vegna nýrra lífslíkutaflna

Hér að neðan er tengill á erindi Benedikts Jóhannessonar, tryggingastærðfræðings hjá Talnakönnun, sem hann hélt á X. Sambandsþingi Samiðnar sem haldið var 2. -3 júní sl. https://samidn.is/wp-content/uploads/2022/06/Motvaegisadgerdir-vegna-nyrra-lifslikutaflna.pdf

X. Sambandsþing Samiðnar

2. og 3. júní Á X. þingi Samiðnar sem haldið var 2. og 3. júní sl. var Hilmar Harðarson formaður Félags iðn- og tæknigreina, endurkjörinn formaður Samiðnar til næstu þriggja ára og Jóhann Rúnar Sigurðsson frá Félagi málmiðnaðarmanna á Akureyri, endurkjörinn varaformaður Samiðnar. Mennta- og barnamálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason og forseti ASÍ, Drífa Snædal, ávörpuðu þingið. Í setningaræðu sinni lagði …

Ályktun miðstjórnar Samiðnar

Ályktun frá miðstjórn Samiðnar Fundur miðstjórnar Samiðnar sem haldinn var 9. maí sl. fordæmir og lýsir yfir miklum áhyggjum á þeirri stöðu sem upp er komin hjá Garðyrkjuskólanum á Reykjum en  mikilvægt er að óvissu málsins sé eytt til að tryggja framtíð garðyrkjunáms á Íslandi. Einhliða ákvörðun eins ráðherra að flytja Garðyrkjuskólann frá Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ) yfir til Fjölbrautaskóla Suðurlands …

Laun hækka vegna hagvaxtarauka

Forsendunefnd ASÍ og SA sem starfar samkvæmt kjarasamningum hefur hist og rætt hagvaxtarauka kjarasamninga. Líkt og greint var frá nýverið (https://www.asi.is/frettir-og-utgafa/frettir/almennar-frettir/nytt-manadaryfirlit-hagvaxtaraukinn-virkjast/) jókst landsframleiðsla á mann um 2,53% á síðasta ári. Þetta hefur þá þýðingu að hagvaxtarauki kjarasamninga hefur virkjast í fjórða þrepi. Forsendunefnd ASÍ og SA hefur ákveðið að hagvaxtaraukinn komi til greiðslu 1. maí líkt og kveðið er á …