Hækkun verkfæragjalds blikksmiða

Í samræmi við kjarasamning Samiðnar og Samtaka atvinnulífsins hækkaði verkfæragjald blikksmiða samkvæmt byggingavísitölu í kr. 69,07 þann 1. janúar.

Félag byggingamanna Eyjafirði opnar heimasíðu

Stjórn Félags byggingamanna Eyjafirði opnaði nýverið heimasíðu undir slóðinni www.fbe.is  Með heimasíðunni er ætlunin að hafa á einum stað gott aðgengi að upplýsingum fyrir félagsmenn og fyrirtæki og ekki síður auðvelda samskipti á milli skrifsofunnar og félagsmanna. Á síðunni er fréttavefur þar sem munu birtast fréttir frá starfi félagsins auk þess sem félagsmenn geta komið á framfæri fréttum og tekið …

Trésmiðafélag Reykjavíkur opnar heimasíðu

Trésmiðafélag Reykjavíkur hefur opnað heimasíðu undir slóðinni www.trnet.is  Á síðunni er hægt að nálgast ýmsar hagnýtar upplýsingar er tengjast starfi félagsins og birtar tilkynningar um það sem er á döfinni. 

Samið við Bechtel vegna framkvæmda við Fjarðarálsverkefnið

Samiðn, Starfsgreinasambandið og Rafiðnaðarsambandið undirrituðu í gær sáttmála við Bechtel vegna framkvæmda við Fjarðarálsverkefnið.  Tilgangur sáttmálans er að stuðla að jákvæðu samstarfi á milli Bechtels og stéttarfélaganna.  Aðilar skuldbinda sig til að skapa öruggt vinnuumhverfi og bjóða upp á tækifæri til þjálfunar og framþróunar í starfi, sem og stuðla að samvinnu og jákvæðum samskiptum á vinnustað í því markmiði að …

Samiðnarblaðið komið út

Annað tölublað Samiðnarblaðsins er nú komið út og hefur verið sent félagsmönnum aðildarfélaganna.  Meðal efnis að þessu sinni er athyglisvert viðtal við trésmið sem lýsir ástandinu við Kárahnjúka, umfjöllun um verkföll og skattalækkanir.

Auglýsing um sveinspróf

Sveinspróf í málmiðngreinum, netagerð, gull- og silfursmíði, skósmíði, úrsmíði, söðlasmíði, hársnyrtiiðn og snyrtifræði verða haldin í janúar 2005, ef næg þátttaka fæst.  Sveinspróf í vélvirkjun verður haldið í mars 2005.  Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu Umsýsluskrifstofu námssamninga og sveinsprófa www.uns.is. Sveinspróf í húsasmíði verður haldið 28. – 30. janúar 2005.  Umsóknafrestur er til 1. des.  Upplýsingar og umsóknareyðublöð liggja frami …

Desemberuppbót og hækkanir 1. jan. 2005

Desemberuppbót: Desemberuppbótin í ár er kr. 38.500 og kr. 24.300 fyrir iðnnema. Starfsmenn sem hafa verið í fullu starfi allt árið hjá sama fyrirtæki og eru við störf hjá fyrirtækinu í síðustu viku nóvember eða í fyrstu viku desember skulu eigi síðar en 15. desember frá greidda desemberuppbót.  Starfsmenn í hlutastarfi sem uppfylla sömu skilyrði skulu fá greitt hlutfallslega.  Uppgjörstímabilið …

Íslandsmeistaramót í málmsuðu

Íslandsmeistaramótið í málmsuðu 2004 fer fram í Iðnskólanum í Hafnarfirði laugardaginn 6. nóvember n.k. og hefst stundvíslega kl 8:00. Aðalstyrktaraðili mótsins að þessu sinni er JAK ehf í samstarfi við Fronius í Austurríki og verður sérfræðingur frá Fronius á staðnum og kynnir suðubúnað fyrirtækisins.  Iðnskólinn í Hafnarfirði verður einnig með opið hús þar sem gestum og gangandi gefst kostur á …