Skipulagsleysi, mannfyrirlitning og slæmur aðbúnaður

Mannfyrirlitning, skipulagsleysi í vinnu, ólestur í öryggismálum, slæmur aðbúnaður starfsmanna, lágt kaup, langur vinnudagur og litlir möguleikar á hvíld. Þetta er reynsla Árna Eðvaldssonar smiðs af ítalska verktakafyrirtækinu Impregilo eftir sjö mánaða vinnu á virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka. Eitt af því sem hann varð áskynja er að raunverulega eru það eftirlitsmenn frá Landsvirkjun sem stjórna framkvæmdum, vegna þess skipulagsleysisins sem ríkir …

Sænskir málmiðnaðarmenn og iðnverkafólk sameinast

Málmiðnaðarmenn og samtök iðnverkafólks í Svíþjóð hafa ákveðið að sameinast í eitt samband og tekur það til starfa 1. janúar 2006. Um 460 þúsund félagar verða í nýja sambandinu. – Meginorsök þess að þeir ákváðu að sameina samböndin er að með því verður til öflugri eining. Menn vilja ná hagkvæmni stærðarinnar, sameina skrifstofur sem víða eru í sama húsi, og …

Væntanlegar skattalækkanir ríkisstjórnarinnar draga úr tekjujöfn

Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur ASÍ, skrifar um skattamál Segja má að tekjuskattskerfið hafi þríþættan tilgang. Í fyrsta lagi að afla ríkissjóði tekna, í öðru lagi að jafna tekjur í þjóðfélaginu og í þriðja lagi að jafna út hagsveiflur. Ekki þarf að fara mörgum orðum um tekjuöflunarhlutverkið. Ríkisvaldið tekur einfaldlega til sín ákveðið hlutfall af laununum okkar til að standa undir …

Hvers vegna öll þessi verkföll?

Geta stjórnmálaflokkarnir haft einhver áhrif á tíðni verkfalla – sem er há hér á landi og virðist fyrst og fremst eiga sér pólitískar ástæður? Á þingi Starfsgreinasambandsins sem haldið var í haust flutti Ingibjörg Sólrún Gísladóttir varaformaður Samfylkingarinnar ræðu sem vakti nokkra athygli. Þar ræddi hún meðal annars um áhrif hnattvæðingarinnar á íslenskt atvinnulíf og nauðsyn þess að efla verkalýðshreyfinguna …

Ég er farinn að eldast – skilaboðaskjóða formannsins

Þegar Samiðn lagði fram kröfugerð vegna síðustu samninga höfðu forustumenn sambandsins reynt að rýna í framtíðina eins og þeim ber að gera. Við töldum að ekki væri ráðlegt að gera lengri samninga en til tveggja ára í jafn-óvissu ástandi og virtist framundan. Stundum er gott að berja sér á brjóst og segja „ég hafði rétt fyrir mér“ en nú verð …

Það er ekki tímabært að lækka skatta (leiðari)

Frá árdögum verkalýðshreyfingarinnar hafa velferðarmálin skipað stóran sess í áherslum hennar. Frá upphafi hefur hreyfingin gert sér ljósa grein fyrir mikilvægi þess að geta jafnað lífskjörin og skapað sem flestum sem jöfnust tækifæri án tillits til efnahags, kyns eða kynþáttar. Íslendingar hafa sótt fyrirmyndir að velferðarkerfinu til Norðurlanda. Þrátt fyrir það eru Íslendingar á mörgum sviðum eftirbátar þeirra þegar kemur …

2F Hús Fagfélaganna

Að 2F Húsi Fagfélaganna standa Byggiðn félag byggingamanna, FIT Félag iðn- og tæknigreina, MATVÍS, Rafiðnaðarsamband Íslands og Samiðn samband iðnfélaga en félögin fluttu í sameiginlegt endurbætt húsnæði að Stórhöfða 31 á vormánuðum 2019 með það að markmiði að auka samstarf félaganna og ekki síst þjónustuna við félagsmenn.  Skrifstofan leigir auk þess og þjónustar VIRK starfsendurhæfingarsjóð. Félögin hafa haft ríkulegt samstarf …

Lög Samiðnar

Prentvæn útgáfa (pdf)   LÖG SAMIÐNAR, SAMBANDS IÐNFÉLAGA   1. KAFLI NAFN OG HLUTVERK   1. grein Sambandið heitir SAMIÐN, SAMBAND IÐNFÉLAGA. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.   2. grein Sambandið er samtök félaga í iðn-og tæknigreinum. Starfssvæði þess er landið allt. Sambandið er aðili að Alþýðusambandi Íslands.   3. grein Samiðn stefnir að auknum áhrifum launafólks á …

Starfsfólk Samiðnar

Finnbjörn A. Hermannsson, formaður   Hilmar Harðarson, varaformaður       Þorbjörn Guðmundsson, framkvæmdastjóri ÞJÓNUSTUSKRIFSTOFA IÐNFÉLAGA   Pálmi Finnbogason, skrifstofustjóri    Guðný Margrét Magnúsdóttir, bókhald/sjúkrasjóðir    Anna M. Hákonardóttir, móttaka/orlofshús    Helga Björg Steingrímsdóttir, félagakerfi    Áslaug Svavarsdóttir, kaffistofa/ræsting