2F Hús Fagfélaganna

Að 2F Húsi Fagfélaganna standa Byggiðn félag byggingamanna, FIT Félag iðn- og tæknigreina, MATVÍS, Rafiðnaðarsamband Íslands og Samiðn samband iðnfélaga en félögin fluttu í sameiginlegt endurbætt húsnæði að Stórhöfða 31 á vormánuðum 2019 með það að markmiði að auka samstarf félaganna og ekki síst þjónustuna við félagsmenn.  Skrifstofan leigir auk þess og þjónustar VIRK starfsendurhæfingarsjóð.

Félögin hafa haft ríkulegt samstarf við gerð kjarasamninga undanfarin ár og komið sameiginlega að málum er snerta hagsmuni iðnaðarmanna svo ákveðið var að stíga næsta skref og formgera samstarfið í sameiginlegu húsnæði og samstarfi um rekstur.

2F Hús Fagfélaganna er til húsa að Stórhöfða 31 og er opið frá kl. 8 til 16 (einum tíma skemur á föstudögum). Sími skrifstofunnar er 5400100.