Palestína

Illvígar deilur sem kosta miklar þjáningar   Hilmar Harðarson formaður FIT heimsótti Ísrael og Palestínu um páskana með hópi verkalýðsleiðtoga og stjórnmálamanna: Nauðsynlegt að alþjóðasamfélagið gripi inn í gang mála   – Það er óhætt að segja að maður sé ekki samur maður eftir þessa för. Það sem bar fyrir augu þarna við botn Miðjarðarhafsins voru ólýsanlegar hörmungar sem verður …

Garðyrkjunámið er nú til húsa í háskóla

Landbúnaðarháskóli Íslands           Ég er ekki í nokkrum vafa um að þessi sameining á eftir styrkja menntun garðyrkjumanna hér á landi og að garðyrkjan nýtur góðs af, segir Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur sem hefur verið ráðin forstöðumaður starfs- og endurmenntunardeildar Landbúnaðarháskóla Íslands. Sá skóli varð til um síðustu áramót þegar Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri, Rannsóknastofnun landbúnaðarins (RALA) og Garðyrkjuskóli ríkisins voru sameinuð. …

Markaðslausnir og félagsleg aðstoð

Stefán Úlfarsson hagfræðingur hjá ASÍ skrifar um húsnæðismál     Miklar hræringar hafa átt sér stað á húsnæðismarkaði síðustu misseri. Segja má að hræringarnar hafi byrjað í upphafi árs 2004 þegar stjórnvöld ákváðu að stefna að hækkun lánshlutfalls íbúðalána í 90% af verði „hóflegrar” íbúðar. Hinn 1. júlí byrjaði Íbúðalánasjóður síðan að bjóða peningalán, fjármögnuð með svokölluðum íbúðabréfum sem eru …

Sameinaði lífeyrissjóðurinn

Þorbjörn Guðmundsson stjórnarmaður sem á sæti stjórn sjóðsins, segir að til þess að fá hæft fólk til að stýra daglegum rekstri sjóðsins þarf að greiða laun sem taka mið launagreiðslum í fjármálageiranum á Íslandi.   Mikil reiði hefur gripið um sig meðal sjóðfélaga Sameinaða lífeyrissjóðsins vegna viðbótarsamnings sem kom í ljós þegar samið var um starfslok framkvæmdastjóra sjóðsins nýverið. Viðbótarsamningurinn …

Hefur skánað en gölluð samt

ASÍ um reglugerð um atvinnuréttindi útlendinga:   Nokkur styr hefur staðið um reglugerð um atvinnuréttindi útlendinga sem félagsmálaráðherra gaf út 23. mars. Alþýðusamband Íslands gagnrýndi harðlega drög að reglugerðinni en segir að í endanlegu útgáfunni hafi verið komið til móts við sjónarmið sambandsins þótt enn séu töluverðir gallar á reglugerðinni. Þá hafa komið upp deilur milli lækna um þann þátt …

Alls staðar glímt við sama drauginn

Fólk frá austurhluta Evrópu flykkist til vesturs í leit að tækifærum og betra lífi en lendir oft í höndum svindlara. Verkalýðsfélögin sitja uppi með vandann     Í dymbilvikunni féll sögulegur dómur í Danmörku. Þar var fyrirtæki í fyrsta sinn dæmt í Vinnudómstólnum til að greiða sekt og bætur til pólskra iðnaðarmanna sem ráðnir höfðu verið með ólöglegum hætti til …

Gegn undirboðum og svartri atvinnustarfsemi

Alþýðusamband Íslands hleypir af stað átaksverkefni 1. maí   Alþýðusamband Íslands hefur ákveðið að hefja átak sem beinist gegn undirboðum á íslenskum vinnumarkaði og svartri atvinnustarfsemi þar sem erlent verkafólk er misnotað. Átakinu verður hleypt formlega af stokkunum nú í vor á hátíðisdegi verkalýðsin, 1. maí.   Ástæðurnar fyrir því að Alþýðusambandið grípur til þessa átaks eru þrjár: Í fyrsta …

Eitt þúsund útlendingar í byggingariðnaði

Í haust ákváðu tólf félög sveina og meistara í byggingariðnaði að kanna hverjir það eru sem sinna störfum iðnaðarmanna á höfuðborgarsvæðinu. Sérstakur starfsmaður fékk það verkefni að fylgjast með vinnustöðunum og heimsótti hann 107 staði á þremur mánuðum. Niðurstaðan er sú að íslenskir iðnaðarmenn eru í tæplega tveimur þriðju hlutum þeirra starfa sem vernduð eru samkvæmt iðnaðarlöggjöfinni en rúmlega þriðjungur …

Ólga á vinnumarkaðnum – Á ekkert að bregðast við?

1372 ný atvinnuleyfi fyrir útlendinga voru gefin út á síðasta ári en enginn hefur tölu yfir þá sem vinna svart eða eru hér í krafti vafasamra „þjónustuviðskipta” – ASÍ kallar eftir stefnu stjórnvalda en fátt er um svör   Stækkun Evrópusambandsins til austurs fyrir tæpu ári reyndist hafa veruleg áhrif á vinnumarkað hér á landi, rétt eins og í öðrum …

Kjarasamningum verður ekki sagt upp vegna leikaraskapar né mannvonsku

SKILABOÐASKJÓÐAN: Mér þykir einnig einsýnt að ef ekki næst saman um leiðréttingar á kauplið samninganna innan launanefndarinnar liggi ekkert annað fyrir okkur Samiðnarmönnum en að segja upp samningum Kjarasamningum verður ekki sagt upp vegna leikaraskapar né mannvonsku Í haust ber launanefnd ASÍ og SA að endurskoða forsendur kjarasamninga. Því er rétt að rifja upp það sem lagt var til grundvallar …