Afleysingar

  0.1             Staðgenglar   0.1.1       Aðilar eru um það sammála, að eigi þurfi að jafnaði að fela starfsmanni sérstaklega að gegna starfi yfirmanns nema fjarvera yfirmanns vari lengur en 7 vinnudaga samfellt.   0.2             Launað staðgengilsstarf   0.2.1       Sé aðalstarf starfsmannsins launað sem staðgengilsstarf yfirmanns, ber starfsmanninum laun skv. flokki yfirmanns, gegni hann starfi hans lengur en 4 vikur samfellt …

Fræðslumál

  0.1     Námskeið   0.1.1       Starfsmenn skulu eiga kost á námskeiðum og annarri starfsmenntun til að auka við þekkingu sína og hæfni.   0.1.2       Starfsmaður sem sækir fræðslu og starfsmenntun með samþykki stofnunar sinnar, skal halda reglubundnum launum, þar með talið vaktaálagi, sem hann ella hefði fengið greitt.   0.1.3       Reykjavíkurborg greiðir sérstakt gjald er nemi 0,35% af heildarlaunum starfsmanns til …

Réttindi starfsmanna vegna veikinda og slysa

  0.1             Tilkynningar, vottorð og útlagður kostnaður   0.1.1       Ef starfsmaður verður óvinnufær vegna veikinda eða slyss, skal hann þegar tilkynna það yfirmanni sínum sem ákveður hvort læknisvottorðs skuli krafist og hvort það skuli vera frá trúnaðarlækni hlutaðeigandi stofnunar. Krefjast má læknisvottorðs af starfsmanni vegna óvinnufærni hvenær sem forstöðumanni /yfirmanni stofnunar þykir þörf á.   0.1.2       Ef starfsmaður kemur ekki …

Réttarstaða starfsmanns í fæðingarorlofi

  0.1             Gildissvið   0.1.1       Kafli þessi tekur til foreldris sem er í a.m.k. 25% starfi og starfað hefur í samfellt 6 mánuði fyrir fæðingu barns síns hjá hlutaðeigandi launagreiðanda og er með gilda ráðningu við upphaf orlofsins.   0.2             Réttarstaða starfsmanna í fæðingarorlofi    0.2.1       Um uppsöfnun og vernd réttinda í fæðingarorlofi fer skv. 14. gr. laga um fæðingar- …

Réttindi og skyldur

  0.1     Gildissvið   0.1.1       Samkomulag þetta tekur til allra starfsmanna Reykjavíkurborgar sem eru félagsmenn í Samiðn – sambands iðnfélaga.   0.2     Um auglýsingu starfa   0.2.1       Það er skylda stofnana og fyrirtækja Reykjavíkurborgar að auglýsa öll laus störf laus til umsóknar á opinberum vettvangi. Skal það gert með 14 daga fyrirvara að jafnaði. Þó er ekki skylt að auglýsa afleysingastörf vegna …

Atvinnuslysatryggingar

  0.1             Slysatryggingar   0.1.1       Starfsmenn skulu slysatryggðir allan sólarhringinn fyrir dauða eða vegna varanlegrar örorku. Um trygginguna gilda mismunandi bótafjárhæðir og tryggingaskilmálar eftir því hvort starfsmaður verður fyrir slysi í starfi eða utan starfs. Um skilmála trygginga þessara gilda sérstakar reglur hvað varðar borgarstarfsmenn nr. sl.1/90 og nr. sl.-2/90 samþykktar af borgarráði þann 5. júní 1990.   0.1.2       Dánarslysabætur …

Aðbúnaður og hollustuhættir

  0.1             Réttur starfsmanna   0.1.1       Allir starfsmenn skulu njóta réttinda samkvæmt gildandi lögum og reglugerðum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, enda falli starf þeirra ekki undir önnur lög.   0.2             Vinnustaðir   0.2.1       Vinnustaður skal þannig úr garði gerður, að þar sé gætt fyllsta öryggis og góðs aðbúnaðar og hollustuhátta samkvæmt gildandi lögum og reglugerðum.   0.3             …

Verkfæri og hlífðarfatnaður

  0.1             Verkfæri   0.1.1       Starfsmanni er ekki skylt að leggja sér til verkfæri og vinnutæki nema svo sé sér­staklega um samið.   0.1.2       Ef starfsmaður leggur til handverkfæri skv. meðfylgjandi listum og samkomulagi við vinnuveitenda, skal greiða sérstakt verkfæragjald sem hér segir:          Hjá byggingarmönnum kr. 28,91          Hjá blikksmiðum kr. 80,74                    Skrá yfir handverkfæri húsasmiða: Nr.               1.         …

Ferðir og gisting

  0.1             Ferðakostnaður samkvæmt reikningi   0.1.1       Kostnaður vegna ferðalaga innanlands á vegum borgarinnar skal greiðast eftir reikningi, enda fylgi fullnægjandi frumgögn. Sama gildir, ef hluti vinnudags er unninn svo langt frá föstum vinnustað, að starfsmaður þarf að kaupa sér fæði utan heimilisins eða fasts vinnustaðar.   0.1.2       Starfsmenn skulu fá fyrirframgreiðslu áætlaðs ferðakostnaðar.   0.1.3       Um uppgjör ferðakostnaðar, þar …

Samþykkt miðstjórnar vegna einkavæðingar Iðnskólans í Reykjavík

Miðstjórn Samiðnar lýsir undrun sinni á að þegar leitað var eftir samstarfi við atvinnulífið við undirbúning stofnunar einkavædds iðnskóla og sameiningu við Fjöltækniskólann, að ekki var rætt við samtök launamanna. Fundurinn krefst þess að tryggt sé að jafnræði gildi milli aðila vinnumarkaðarins þegar ákveðið verði um áframhald málsins og aðild að stjórnun skólans. Miðstjórnin telur það algjöra forsendu þess að samstaða geti orðið …