Frá og með 1. febrúar nk. verður einn samræmdur vinnutími hjá aðildarfélögum Samiðnar, en frá þeim tíma verður virkur vinnutími 36 klukkustundir á viku. Jafnframt verður deilitala dagvinnukaups 156 frá sama tíma. Áhrif breytts fyrirkomulags á kaffi- og matartíma hefur engin áhrif nema um annað sé samið.
Umrædd breyting byggir á 3. grein í kjarasamningi aðila frá 12. desember 2022 en gildistími hans er frá 1. nóvember 2022 til 31. janúar 2024.
Ef óskað er aðstoðar við útfærsluna er hægt að senda tölvupóst á postur@samidn.is.
Hér fyrir neðan eru fjögur reiknidæmi um útfærslu styttingarinnar. Athugið að myndirnar opnast í betri upplausn ef smellt er á þær. Hér er svo Excel-skjal sem hægt er að sækja og færa inn eigin forsendur.
![](https://samidn.is/wp-content/uploads/2024/01/daemi-1_-1024x287.png)
![](https://samidn.is/wp-content/uploads/2024/01/daemi-2_-1024x288.png)
![](https://samidn.is/wp-content/uploads/2024/01/daemi-3_-1024x298.png)
![](https://samidn.is/wp-content/uploads/2024/01/daemi-4_-1024x286.png)