Vel heppnað golfmót iðnfélaganna

Alls tóku 88 manns þátt í vel heppnuðu golfmóti sem iðnfélögin héldu fyrir félagsmenn sína hjá Golfklúbbi Akureyrar að Jaðri 11. september sl. Voru þátttakendur víðsvegar að af landinu og almenn ánægja með þetta skemmtilega mót. Umsjón mótsins var í höndum Félags málmiðnaðarmanna á Akureyri og Rafiðnaðarmanna, en leikið var með tveggja manna texas fyrirkomulagi þar sem betri bolti var valinn. Nándarverðlaun voru fyrir högg á öllum par 3 holum og 3 högg á 15. braut. Einnig voru mörg útdráttarverðlaun og teiggjafir til félagsmanna og matur að loknu móti.

Sigurvegarar mótsins:

  1. Hallur Guðmundsson Rafeindavirki og makker Lárus Ingi Antonsson með -14 frá RSÍ
  2. Jóhann Rúnar Sigurðsson og Guðrún Sigurðardóttir með -11 frá FMA
  3. Unnar þór Axelsson og Sigurður Hreinsson með -10 frá Matvís
  4. Gunnar Rafnsson og Arnar Óskarsson með -10 frá FMA
  5. Helgi Einarsson og Guðbjörn Ólafsson með -9 frá RSÍ