Sigurvegarar í golfmóti Samiðnar

Hið árlega golfmót Samiðnar fór fram í Leirunni sunnudaginn 16. júní sl. Vel var mætt á Hólmsvöllinn þrátt fyrir nokkurn vind enda bætti félagsskapurinn fyrir það sem uppá vantaði í veðrinu.

Ræst var út kl. tíu og leikin punktakeppni með og án forgjafar.

Eftir hringinn var boðið til veislu í golfskála Golfklúbbs Suðurnesja. Eftir að þátttakendur höfðu nært sig voru veitt verðlaun.

Verðlaunahafar voru sem hér segir:

Með forgjöf:

  1. Sigurður Þór Hlynsson
  2. Heimir Hafsteinsson
  3. Einar Snorrason

Án forgjafar:

  1. Hlynur Jóhannsson
  2. Árni Freyr Sigurjónsson
  3. Kristján Björgvinsson
  • Nándarverðlaun á 3. braut hlaut Friðbjörn Arnar Steinsson
  • Nándarverðlaun á 13. braut hlaut Hlynur Jóhannsson
  • Nándarverðlaun á 16. braut hlaut Hlynur Jóhannsson
  • Lengsta upphafshögg karla á 18. holu átti Jón Gunnar Sigurðsson
  • Lengsta upphafshögg kvenna á 18. holu átti Sigríður Svava Rafnsdóttir

Samiðn óskar sigurvegurum og öðrum verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn og þakkar þátttakendum fyrir eftirminnilegan dag í Leirunni.