Námskeið fyrir trúnaðarmenn

Námskeið fyrir trúnaðarmenn félaga í Samiðn verða haldin á Stórhöfða 31 dagana 20. og 23. október. Þessi námskeið teljast til þriðja hluta.

Megináhersla er lögð á grunntölur launa, útreikninga á launaliðum, mikilvægi launaseðla og kunnáttu til að yfirfara þá. Nemendur leysa verkefni þessu tengt og læra helstu deilitölur, launaútreikninga og verkefni námskeiðsins felst í að reikna heil mánaðarlaun frá grunni.

Nemendur kynnast þeim tryggingum sem við höfum í gegnum kjarasamninga. Einnig er farið í uppbyggingu almannatryggingakerfisins og hlutverk lífeyrissjóða. Farið verður í réttindaávinnslu og samspil þessara kerfa.

Nemendur þurfa að skrá sig inn á innri vef Félagsmálaskólans.

Stofna þarf aðgang í skráningunni með netfangi og lykilorði sem veitir aðgang að námsvef/Learncove. Þar sækja nemendur þau námsgögn sem notuð eru fyrir hvern námsþátt.

Á innri vef fara fram samskipti nemenda og leiðbeinenda. Nemendur munu geta fylgst með námsframvindu sinni á innri vef skólans. Þar munu þeir einnig sækja viðurkenningarskjölin að námskeiðið loknu.

Munið að nauðsynlegt er fyrir nemendur að hafa meðferðis fartölvu, spjaldtölvu eða snjallsíma á námskeiðin. Athugið að skráningu lýkur u.þ.b. viku fyrir fyrsta námskeiðsdag.