Atkvæðagreiðsla um nýgerðan kjarasamning við Reykjavíkurborg

Atkvæðagreiðsla um nýgerðan kjarasamning Samiðnar við Reykjavíkurborg hefst á morgun, fimmtudaginn 27. apríl kl. 08:00 og stendur yfir til kl. 12:00 miðvikudaginn 3. maí nk.

Atkvæðagreiðsla fer fram í gegnum „mínar síður“ en allt félagsfólk fær sendan hlekk á atkvæðagreiðslu í gegnum tölvupóst og sms, ef upplýsingar eru til staðar.

Minnt er á að kynning vegna samningsins verður haldin kl. 09:00 á morgun, fimmtudaginn 27. apríl að Stórhöfða 31, gengið inn Grafarvogsmegin.