Styrktu Hjálparstarf kirkjunnar

Félögin í Húsi fagfélaganna styrktu innanlandsstarf Hjálparstarfs kirkjunnar um eina milljón krónur nú í desember. Hefð hefur skapast fyrir því í Húsi fagfélaganna að leggja góðu málefni lið á þessum tíma árs. 

Á Íslandi veitir Hjálparstarf kirkjunnar fólki sem býr við fátækt aðstoð í neyðartilfellum ásamt því að beina fólki þangað sem það getur vænst aðstoðar sem stofnunin veitir ekki beint. Hjálparstarfið leggur ríka áherslu á að tryggja velferð barna og því er sérstaklega hlúð að barnafjölskyldum. Starfið felst í því að greina vandann, veita félagslega ráðgjöf og efnislegan stuðning. Það felst einnig í valdeflingu sem leiðir til sjálfshjálpar þeirra sem starfað er með og í því að tala máli þeirra sem í nauðum eru staddir svo samfélagið taki tillit til þarfa þeirra og réttinda og að gripið verði til aðgerða sem breyta lífsmöguleikum þeirra til hins betra. Félagsráðgjafar Hjálparstarfsins starfa með prestum og djáknum, félagsþjónustu sveitarfélaga, öðrum mannúðarsamtökum, stofnunum og ráðuneytum að úrlausn verkefna en ekkert er skipulagt án þess að notendur þjónustunnar séu hafðir með í ráðum. Félagsráðgjafar og notendur þjónustu Hjálparstarfsins taka þátt í fjölbreyttu samstarfi til að sporna gegn fátækt og félagslegri einangrun, stuðla að opinni umræðu og þrýsta á stjórnvöld um að takast á við fátækt á árangursríkan hátt.

Á meðfylgjandi mynd eru Guðfinnur Þór Newman, framkvæmdastjóri Samiðnar, Finnbjörn Hermannsson, formaður Byggiðnar, Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri hjálparstarfs kirkjunnar, Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður RSÍ, Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður VM og Óskar Hafnfjörð Gunnarsson, formaður MATVÍS. Félag iðn- og tæknigreina er einnig aðili að gjöfinni en Hilmar Harðarson, formaður FIT,  var veðurtepptur þegar afhending styrksins fór fram.