Desemberuppbótin á almennum markaði, að meðtöldu orlofi, er kr. 110.000 og skal greiðast í síðasta lagi 15. desember miðað við starfshlutfall og starfstíma.
Starfsmenn sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi 1.desember eiga rétt á desemberuppbót. Starfsmenn í ákvæðisvinnu fá greidda desemberuppbót líkt og aðrir.
Sá tími sem starfsmaður er í fæðingarorlofi telst sem starfstími við útreikning desemberuppbótar.
Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fá fulla desemberuppbót.
Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.
> Samtök atvinnulífsins (SA): kr. 110.000,-
> Ríkissjóður kr. 110.000,-
> Reykjavíkurborg kr. 123.000,-
> Strætó kr. 140.000,-
> Orkuveitan kr. 127.900,-
> Samband íslenskra sveitafélaga kr. 140.000,-
> Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma kr. 123.000,–

