Sambandsstjórn skorar á Alþingi að lögbinda ákvæði um keðjuábyrgð og kennitöluflakk

Á fundi sambandsstjórnar Samiðnar sl. föstudag 12. janúar afhenti Hilmar Harðarson formaður Samiðnar, Ásmundi Einari Daðasyni ráðherra jafnréttis- og velferðarmála, áskorun fyrir hönd sambandsstjórnar þar sem Alþingi er hvatt til að lögbinda nú á vorþingi ákvæði um keðjuábyrgð og varnir gegn kennitöluflakki.

Jafnframt samþykkti sambandsstjórnin ályktanir um #MeToo og stöðu kjarasamninganna.