Miðstjórn Samiðnar samþykkti á fundi sínum í dag ályktanir þar sem skorað er á nýtt Alþingi, að eitt af fyrstu verkum þess verði að setja skýra löggjöf um keðjuábyrgð aðalverktaka og verkkaupa gagnvart starfsmönnum undirrverktaka. Einnig samþykkti miðstjórnin áskorun á Alþingi og væntanlega ríkisstjórn, að afgreiða breytingar á lögum um lífeyrissjóði opinberra starfsmanna, en takist það ekki fyrir áramót eru forsendur fyrir samræmingu lífeyrisréttinda á almenna og opinbera markaðnum brostnar. Þá samþykkti miðstjórnin ályktun þar sem bent er á að verði niðurstaða kjararáðs látin standa mun það leiða til endurskoðunar gildandi kjarasamninga þar sem viðmið kjararáðs verði haft að leiðarljósi.
> Sjá samþykkt um keðjuábyrgð
> Sjá samþykkt um jöfnun lífeyrisréttinda
> Sjá samþykkt um kjararáð