Ólafur Sigurðsson ráðinn framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs

Ólafur Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs, sem stofnaður var í lok september við sameiningu Sameinaða lífeyrissjóðsins og Stafa lífeyrissjóðs.

Ólafur hefur verið framkvæmdastjóri Stafa lífeyrissjóðs frá stofnun 2006 og var áður framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðsins Lífiðnar og verðbréfafyrirtækisins Virðingar.

Sjá nánar.