Hátíðarhöld á baráttudegi verkalýðsins 1. maí verða með hefðbundnum hætti um land allt með tilheyrandi kröfugöngum, útifundum og kaffisamsætum stéttarfélaganna. Í Reykjavík fer kröfugangan kl. 13:30 frá Hlemmi að Ingólfstorgi þar sem haldinn verður útifundur og að honum loknum bjóða stéttarfölögin í 1. maí kaffi. Byggiðn og FIT bjóða félagsmönnum sínum á Grand hótel við Sigtún (Gullteigur).