Samkomulag um breytt vinnubrögð við gerð kjarasamninga

Heildarsamtök launafólks og atvinnurekenda á almennum og opinberum vinnumarkaði skrifuðu í dag undir samkomulag um breytt vinnubrögð við gerð kjarasamninga. Markmið samkomulagsins er að tryggja varanlega aukningu kaupmáttar á Íslandi á grundvelli lágrar verðbólgu, stöðugs gengis krónunnar og lægri vaxta. Með samkomulaginu er lagður grunnur að sátt á vinnumarkaði, auknu samstarfi og minni  átökum. Ennfremur er stefnt að auknum efnahagslegum og félagslegum stöðugleika í landinu.

Sjá nánar á vef ASÍ