Heimild til boðunar verkfalls samþykkt

Samiðn ásamt félögum iðnaðarmanna sem eru í samstarfi um endurnýjun á almenna kjarasamningnum við Samtök atvinnulífsins, þ.e. MATVÍS, Grafía/FBM, VM, Félag hársnyrtisveina og aðildarfélög RSÍ, samþykktu í allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna sinna heimild til verkfallsboðunar.
Atkvæðagreiðslunni lauk í dag kl. 10:00.
Kosningarnar náðu til 10.499 félagsmanna í 25 stéttarfélögum og var kosningaþátttakan 44,6%.
Samþykkt var að boða til verkfalla í öllum stéttarfélögunum sem hæfust 10. júní með tímabundnu verkfalli og ótímabundnu verkfalli 24. ágúst n.k.
Já sögðu 75,1%
Nei sögðu 22,1%
Þeir sem ekki tóku afstöðu 2,8%
Heimild til verkfallsboðunar var því samþykkt með miklum meirihluta atkvæða og náist ekki ásættanlegur árangur í viðræðum við atvinnurekendur á næstu dögum koma framangreind verkföll til framkvæmda.