1. maí – Jöfnuður býr til betra samfélag

Hátíðarhöld á baráttudegi verkalýðsins 1. maí verða með hefðbundnum hætti um land allt með tilheyrandi kröfugöngum, útifundum og kaffisamsætum stéttarfélaganna.  Hátíðarhöldin í Reykjavík hefjast kl. 13:30 með kröfugöngu frá Hlemmi að Ingólfstorgi þar sem haldinn verður útifundur og að honum loknum bjóða stéttarfölögin í 1. maí kaffi.  Byggiðn og FIT bjóða félagsmönnum sínum á Grand hótel við Sigtún (Gullteigur).  Þess má geta að einn af ræðumönnum dagsins á Ingólfstorgi verður Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar.