Starfsmenntamyndbönd fyrir nemendur og foreldra

Þessa dagana standa nemendur í 10. bekk frammi fyrir því að velja sér nám næsta vetur. Það er margt í boði og því mikilvægt fyrir nemendur ásamt foreldrum að kynna sér námsframboð vel.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið ásamt Samiðn hafa látið útbúa fjögur stutt myndbönd um þau tækifæri sem felast í störfum í byggingar- og málmiðnaði. Markmiðið er að myndböndin gefi góða innsýn í þessi störf og kveiki áhuga hjá ungu fólki sem er að velja sér framtíðarstarf. Eins er markmiðið að vekja athygli nemenda og foreldra þeirra á hagnýtu og skemmtilegu námi sem opnar leiðir inn í fjölbreytt framhaldsnám og starfsvettvang þar sem eftirspurn er eftir fólki og framtíðarhorfur góðar.
Myndböndin eiga að nýtast nemendum, foreldrum, náms- og starfsráðgjöfum og öðrum fræðsluaðilum. Hvert myndband er 90 sekúnda langt en mælt er með því að horfa á þau öll til að fá heildarmyndina.
Smíða
Byggja
Framleiða
Um störfin
Eins lét Rafiðnaðarsambandið nýlega gera fimm myndbönd um störf í rafiðnaði :
Störf í rafiðnaði
Óbeint rafmagn
Hvernig komst ég hingað?
Framtíðin, menntun og störf
Allt hægt með rafmagni
Myndböndin eru hluti af verkefni sem unnið er í ráðuneytinu sem hefur það markmið að efla kynningu á iðn-, verk- og tækninámi. Sjá nánar: http://www.menntamalaraduneyti.is/frettir/forsidugreinar/nr/8010