Hækkanir ríkis og sveitarfélaga á gjaldskrám og neyslusköttum auka verðbólgu

Í athyglisverðri úttekt hagdeildar Alþýðusambandsins kemur fram að hækkanir á gjaldskrám og neyslusköttum ríkis og sveitarfélaga hafa á síðustu árum aukið álögur á heimilin og skilað sér beint út í verðlagið og valdið aukinni verðbólgu.

Frá árinu 2008 hefur opinber þjónusta hækkað um ríflega 35% auk þess sem auknar álögur á eldsneyti, áfengi og tóbak hafa valdið um þriðjungs hækkun á þessum vörum á tímabilinu. Áætla má að hækkanir á opinberum álögum hafi á síðustu árum hækkað verðlag hér á landi um 5-6%.

Sjá nánar.