Þessi lítilsháttar hækkun VNV nú í desember er sú minnsta í desembermánuði síðan um síðustu aldamót, en frá þeim tíma hefur vísitalan að jafnaði hækkað um rúm 0,4% í mánuðinum. Það sem kemur mest á óvart í mælingu Hagstofunnar að þessu sinni er óvænt lækkun á flugfargjöldum til útlanda í jólamánuðinum. Þannig lækka flugfargjöld til útlanda um 3,7% á milli nóvember og desember, (vísitöluáhrif -0,06%), sem er algjörlega úr takti við það sem þessi liður hefur gert í desember síðustu ár.
Hægir skarpt á kaupmáttaraukningu
Kaupmáttur launa dróst saman um 0,1% í nóvember frá fyrri mánuði. Undanfarna tólf mánuði hefur kaupmáttur launa aukist um aðeins 0,4%. Ljóst er að verðbólgan er komin langt með að éta upp þá kaupmáttaraukningu sem orðið hefur af tæplega 8% kjarasamningsbundinni hækkun launa frá því í júní í fyrra.
Sjá nánar í Morgunkorni Íslandsbanka