ASÍ boðar til formannafunda vegna endurskoðunar kjarasamninga

Fyrir kl. 16:00 þann 21. janúar 2013 þarf samninganefnd ASÍ og framkvæmdastjórn SA að tilkynna hvorum aðila um sig niðurstöðu sína varðandi framlengingu kjarasamninga.

 

Fundirnir verða haldnir á grundvelli VIII. kafla laga ASÍ um formannafundi.

Fundirnir verða haldnir sem hér segir:

13. desember 2012 kl. 13-16 í Gullteig á Grand Hótel Reykjavík.
7. janúar 2013, kl. 13-16 – fundarstaður kynntur síðar.
18. janúar 2013,kl. 13-16 – fundarstaður auglýstur síðar.

Setu- og atkvæðarétt á formannafundum eiga skv. 36. gr. ,,formenn allra aðildarfélaga ASÍ, formenn aðildardeilda einstakra sambanda, forseti og varaforseti ASÍ, þeir miðstjórnarmenn (aðal- og varamenn) sem ekki eru formenn aðildarfélaga eða aðildardeilda auk formanns ASÍ-UNG.