ASÍ bregst við ofbeldi gegn verkalýðsleiðtogum í Kólumbíu

Frá 1986 hafa tæplega 3000 fulltrúar kólumbískra verkalýðsfélaga myrtir, þarf af tæplega 800 formenn verkalýðsfélaga. Lítið er aðhafst vegna þessa ofbeldis sem ýmist er framið af stjórnvöldum sjálfum eða skipulögðum glæpasamtökum gegn greiðslu frá þeim sem telja hagsmunum sínum ógnað af starfsemi verkalýðsfélaga. Ofbeldi og glæpir gegnsýra kólumbískt samfélag og stjórnvöld hafa haldið því fram að ofbeldi gegn verkalýðshreyfingunni og forystumönnum hennar sé einungis hluti af því ástandi. Alþjóðleg verkalýðshreyfing, sérfræðingar og þing ILO – Alþjóðavinnumálastofnunarinnar eru ekki sammála því og telja að um sé að ræða skipulagða baráttu gegn grundvallarmannréttindum launafólks og gegn frjálsri verkalýðshreyfingu.

Ísland sem kýs að vera kyndilberi mannréttinda á alþjóðavettvangi getur ekki verið aðili að samningum um frjáls viðskipti með vöru og þjónustu sem sprettur úr jarðvegi grófra og viðvarandi mannréttindabrota gegn launafólki og frjálsri verkalýðshreyfingu. Slíkir samningar styðja ríkjandi ástand í stað þess að vinna gegn því. Þess vegna leggst ASÍ eindregið gegn staðfestingu þessara samninga.

Umsögn ASÍ um málið má sjá hér.