Þing ASÍ-UNG

Annað þing ASÍ-UNG verður haldið í sal Rafiðnarskólans að Stórhöfða 27 þann 14. september. Á fjórða tug stéttarfélaga hefur tilnefnt fulltrúa á þingið. Húsnæðismál ungs fólks verður aðal umræðuefnið á þinginu en endanlega dagskrá þess liggur nú fyrir. Yfirskirft þingsins er: Húsnæði – mannréttindi ekki forréttindi. Á þinginu verður m.a. opnuð ný vefsíða ASÍ-UNG sem sérstaklega er sniðin að ungu fólki og réttindum þess á vinnumarkaði.  
Dagskrá 2. þings ASÍ-UNG.