„Samkvæmt kjarasamningum sem undirritaðir voru 5.maí s.l. var kveðið á um að endurskoða ætti forsendur kjarasamninga fyrir 20.janúar 2012. Í slíku mati bæri að taka tillit til þróunar kaupmáttar og framgangs efnisþátta sem getið var í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.
Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands hefur kaupmáttur launa almennt aukist á samningstímanum meðal iðnaðarmanna.
Varðandi framgang verkefna sem getið er í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar hefur verið staðið við nokkur veigamikil atriði en verulega skortir á að staðið hafi verið við gefin fyrirheit varðandi eflingu atvinnulífs og jöfnun lífeyrisréttinda.
Þrátt fyrir alvarleika þess að ríkisstjórnin hefur ekki staðið við gefin fyrirheit sem voru forsendur þess að lagt var til að kjarasamningar yrðu staðfestir, leggur miðstjórn Samiðnar til við samninganefnd ASÍ að kjarasamningunum verði ekki sagt upp að svo komnu máli.
Miðstjórn Samiðnar skorar á ríkisstjórnina að breyta orðum í athafnir og taka sér tak og standa við gefin fyrirheit um aðgerðir ekki síst hvað varðar jöfnun lífeyrisréttinda og eflingu atvinnulífsins.
Hafi ríkisstjórnin ekki pólitískan kraft og vilja til að takast á við jafn brýnt verkefni og eflingu atvinnulífsins ber henni að víkja og boða til kosninga sem fyrst. Núverandi stjórnarandstaða hefur ekki sýnt ábyrgð né pólitíska getu til að taka við landsstjórninni og þjóðin hefur ekki efni á að bíða eftir aðgerðum fram á mitt næsta ár.“