Í tilefni af Vinnuverndarvikunni sem nú stendur yfir mun Vinnueftirlitið standa fyrir ráðstefnu á Grand Hóteli við Sigtún þriðjudaginn 25.október. Áhersla Vinnuverndarvikunnar að þessu sinni er á öryggi við viðhaldsvinnu en auk áhugaverðra fyrirlestra verða á ráðstefnunni veittar viðurkenningar til fyrirtækja sem talin eru standa sig vel í öryggismálum og aðbúnaði starfsmanna. Ráðstefnan hefst kl. 13 í Gullteig A-sal.