NÝTT – kjarasamningur við Reykjavíkurborg

Viðræðunefnd Samiðnar undirritaði 30.maí s.l. nýjan kjarasamning við Reykjavíkurborg til þriggja ára.  Launahækkanirnar hljóða upp á kr. 12.000 þó að lágmarki 4,6% þann 1.júní 2011, kr. 11.000 þó að lágmarki 3,5% þann 1.mars 2012 og kr. 11.000 þó að lágmarki 3,5% þann 1.mars 2013 .  Auk þess 50.000 kr. eingreiðsla sem greiðist til þeirra sem voru í fullu starfi mánuðina mars til maí á þessu ári og eingreiðsla kr. 25.000 1.febrúar 2012.  Gert er ráð fyrir að samningurinn verði kynntur og afgreiddur í byrjun næstu viku.

Sjá samninginn.