Orlofsuppbótin kr. 26.900 auk álags kr. 10.000

Orlofsuppbótin, að meðtöldu orlofi, greiðist þann 1.júní miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu (01.05.-30.04), öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30.04. eða eru í starfi 01.05.  Orlofsuppbótin er kr. 26.900 (36.900 m/álagi).  Starfsmenn í ákvæðisvinnu fá greidda orlofsuppbót líkt og aðrir. Á árinu 2011 greiðist sérstakt álag á orlofsuppbót kr. 10.000 nema ASÍ hafi ákveðið að samningarnir gildi til loka 2012.  Álagið greiðis út samhliða greiðslu orlofsuppbótar samkvæmt kjarasamningi.  Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fá fulla orlofsuppbót.   Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.  Sjá útreikning orlofsuppbótar.