Samiðn hefur undirritað nýjan kjarasamning við ríkið sem gildir frá 1. júlí 2009 til 30 nóvember 2010 með endurskoðun 1. nóvember 2009.
Kjarasamningurinn ber sterk einkenni þess efnahagsumhverfis sem Íslendingar búa við í dag og stöðuleikasáttmálanum sem undirritaður var 25. júní s.l.
Megin breytingar eru:
1. 1. júlí 2009 hækka öll laun sem eru grunnröðuð í 21. launaflokk og neðar um einn launaflokk.
2. 1. nóvember 2009 hækka öll laun um einn launaflokk sem eru grunnröðuð í 22. launaflokk um einn launaflokk og verður lágmarks grunnröðuð iðnaðarmanns á fyrsta starfsári 23 launaflokkur. Bil á milli launaflokka er í kringum 3%.
3. 1. júní 2010 kemur krónutöluhækkun á launataxtana sem er misjöfn eftir mánaðarlaunum fyrir dagvinnu og fjarar út eftir því sem þau hækka þannig að laun yfir 310.000 kr. fá enga hækkun. Sjá meðfylgjandi töflu.
4. Persónuuppbót hækkar 2009 úr 44.100 kr. í 45.600 kr. og 2010 í 46.800 kr.
5. Orlofsuppbót verður 2010 25.800 kr. en var 2009 24.300.
Gert er ráð fyrir að atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn verði lokið fyrir 14. ágúst n.k. og niðurstaða verði tilkynnt þann dag kl. 16.00. Viðhöfð verður póstatkvæðagreiðsla lokadagur til að setja atkvæði í póst er 11. ágúst.
Reykjavíkurborg, launanefnd sveitarfélaga og Samiðn hafa orðið ásátt um að fresta kjarasamningsviðræðum til annarrar viku ágústmánaðar.