Stöðugleikasáttmáli undirritaður og launahækkanir tryggðar

Stöðugleikasáttmáli um endurreisn íslensks efnahagslífs var í dag undirritaður milli ríkistjórnarinnar, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins. Samhliða gerð sáttmálans hafa aðilar vinnumarkaðarins sameinast um að eyða óvissu á vinnumarkaði með því að ljúka gerð kjarasamninga sem gilda til nóvemberloka árið 2010, þar sem áhersla er lögð á að styrkja stöðu þeirra tekjulægstu.

Endurskoðunar- og framlengingarákvæði samninga er skilyrt frestað og endurskoðun og ákvörðun um framlengingu skal lokið 27.október.  Launabreytingar sem taka áttu gildi 1.mars 2009 en var frestað skulu koma þannig til framkvæmda:

1. Helmingur hækkana almennra kauptaxta kemur til framkvæmda 1.júlí sem hækka þá um 6.750 kr. eða 8.750 kr. á mánuði.  Helmingur hækkana á ákvæðisvinnutöxtum, kostnaðarliðum og fastákveðnum launabreytingum kemur jafnframt til framkvæmda 1.júlí.  Hinn helmingur þessara hækkana (sömu tölur) kemur til framkvmda 1.nóvember 2009.
2. 3,5% launaþróunartrygging kemur til framkvæmda 1.nóvember 2009 og viðmiðunartími vegna hennar miðast við tímabilið 1.janúar-1.nóvember 2009.
3. Hækkun kauptaxta, almennar launahækkanir og aðrar kjaraberytingar sem áttu að taka gildi 1.janúar 2010 færast til 1.júní 2010.

Kjarasamning ASÍ og SA ásamt samkomulagi um breytingar má sækja hér.

Stöðugleikasáttmálann má sækja hér.