Desemberuppbótin kr. 44.100

Desemberuppbótin í ár er kr. 44.100 fyrir þá sem eru í fullu starfi og skal greiðast út eigi síðar en 15.desember.  Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fá fulla desemberuppbót og starfsmenn í ákvæðisvinnu fá greidda desemberuppbót.  Starfsmenn í hlutastarfi fá greitt í samræmi við starfshlutfall og starfsmenn með skemmri starfstíma skulu fá greitt hlutfallslega miðað við starfstíma sinn.  Uppgjörstímabilið er almanaksárið og telst starfsárið þá vera 45 unnar vikur.  

Starfsfólk Reykjavíkurborgar fær kr. 50.000, starfsfólk hjá ríkinu kr. 44.100 og starfsfólk sveitarfélaga kr. 63.366.

Hér má sækja reiknivél til að reikna út starfstíma og starfshlutfall – sækja reiknivél