Fundarherferð ASÍ

Forysta ASÍ efnir til fundarherferðar um landið undir yfirskriftinni Áfram Ísland – fyrir hag heimilanna.  Haldnir verða sjö fundir vítt og breitt um landið en sá síðasti þeirra verður útifundur á Ingólfstorgi í Reykjavík.  Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ mun ræða um stöðuna og framtíðarsýn Alþýðusambandsins.  Áhersla verður lögð á fyrirspurnir úr sal þar sem að formenn landssambanda og forsetinn munu sitja fyrir svörum.

Sjá vef ASÍ.