Á fundi miðstjórnar Samiðnar sem haldinn var á Ísafirði 11. og 12.september voru samþykktar eftirfarandi ályktanir um atvinnumál og efnahagsmál:
Ályktun um atvinnumál
Miðstjórn Samiðnar skorar á stjórnvöld að grípa nú þegar til aðgerða til að koma í veg fyrir fyrirsjáanlegt atvinnuleysi á næstu misserum. Í því sambandi er mikilvægt að verklegum framkvæmdum á vegum hins opinbera verði flýtt næstu tvö árin s.s. viðhaldi opinberra bygginga og uppbyggingu samgöngumannvirkja.
Mikilvægt er að allri óvissu um fjármögnun á íbúðarhúsnæði verði eytt og framtíð Íbúðarlánasjóðs verði tryggð í núverandi mynd og honum verði gert kleyft að skuldbreyta húsnæðislánum einstaklinga. Miðstjórnin hafnar því að jafn mikilvægur þáttur í framfærslukostnaði almennings eins og fjármögnun húsnæðis verði alfarið sett í hendur á markaðsráðandi öflum og bendir á þróunina á bandarískum húsnæðismarkaði í því sambandi en þessa dagana er það opinbera að yfirtaka einkarekna íbúðarlánasjóði ekki síst til að verja hagsmuni lántakenda.
Miðstjórnin telur mikilvægt að framhald verði á uppbyggingu nýrra orkuvera til að skapa áhugaverðar aðstæður fyrir áframhaldandi atvinnuuppbyggingu. Jafnframt verði þess gætt að framkvæmdatími sé með þeim hætti að framkvæmdirnar valdi ekki óstöðugleika í íslensku efnahagslífi. Miðstjórnin hvetur til þess að ferlar við mat á umhverfisþáttum í tengslum við verklegar framkvæmdir verði endurskoðaðir með það að markmiði að þeir verði markvissari, matstími styttur og ekki verði gripið inn í verkferla sem framkvæmdaleyfi er fyrir.
Miðstjórnin varar við þeirri þróun að útboðsverk á vegum opinberra aðila fari í auknum mæli til erlendra verktaka án þess að allar forsendur séu metnar. Við mat á tilboðum er mikilvægt að tekið sé tillit til heildarkostnaðar m.a eftirlit og að laun starfsmanna og fagréttindi séu sambærileg og eru á íslenskum vinnumarkaði. Þá er ótalinn sá virðisauki sem fellur til þegar verk eru framkvæmd af íslenskum aðilum. Við þær aðstæður sem nú ríkja í bygginga- og mannvirkjagerð er mikilvægt að staðið sé þannig að útboðum að íslensk verktakafyrirtæki standi jafnfætis þeim erlendu.
Ályktun um efnahagsmál
Miðstjórn Samiðnar lýsir yfir miklum vonbrigðum með þróun efnahagsmála og undrast aðgerðarleysi íslenskra stjórnvalda. Fyrir ári síðan var mikill uppgangur á Íslandi, öflug útrás fyrirtækja og vaxandi kaupmáttur launatekna. Nú einkennist ástandið af svartsýni og samdrætti, kaupmáttur launa er í frjálsu falli, mikið atvinnuleysi er yfirvofandi, óðaverðbólga er að festast í sessi, forsendur kjarasamninga eru brostnar og vaxtastig með því hæsta sem þekkist . Við þessu ástandi verður að bregðast með samstilltu átaki ríkisstjórnar, stjórnarandstöðu, sveitarstjórna og aðila vinnumarkaðarins með það að markmiði að koma á stöðugleika í íslensku efnahagslífi. Samiðn leggur áherslu á að verkalýðshreyfingin hafi frumkvæði og forystu í þeirri vinnu. Mikilvægt er að vandinn verði vel skilgreindur og aðgerðir beinist að því að bregðast við núverandi ástandi, ekki síst í gengismálum. Jafnframt er mikilvægt að horft verði til framtíðar og gripið til aðgerða sem tryggja að Íslendingar búi við sambærileg skilyrði og þekkist í nágrannalöndunum hvað varðar verðbólgu, gengismál og vexti. Um leið og miðstjórnin ítrekar kröfur um samstöðu gegn núverandi ástandi skorar hún á alla aðila að ganga hreint til verks og taka efnahagsmálin úr þeirri herkví sem þau hafa verið í undangengin misseri, ekki síst umræðuna um stöðu krónunnar og ábyrgð banka og fjármálastofnana. Ekki verður séð að hægt sé að skapa stöðugleika í íslensku efnahagslífi nema til komi stöðugleiki í gengismálum.