Desemberuppbótin í ár er kr. 41.800 fyrir þá sem eru í fullu starfi og skal greiðast út eigi síðar en 15.desember. Iðnnemar fá kr. 26.200. Starfsmenn í hlutastarfi fá greitt í samræmi við starfshlutfall. Starfsmenn með skemmri starfstíma skulu fá greitt hlutfallslega miðað við starfstíma sinn, en uppgjörstímabilið er almanaksárið og telst starfsárið þá vera 45 unnar vikur.
Starfsfólk Reykjavíkurborgar fær kr. 47.000, starfsfólk hjá ríkinu kr. 41.800, starfsfólk sveitarfélaga kr. 61.520, starfsfólk Landsvirkjunar kr. 68.032 starfsfólk Faxaflóahafna kr. 47.000 og starfsfólk Orkuveitunnar kr. 51.000.
Hér má sækja reiknivél til að reikna út starfstíma og starfshlutfall – sækja reiknivél