Kjaramálaráðstefna 12. og 13. október

Samiðn boðar til kjaramálaráðstefnu með þátttöku trúnaðarmanna á vinnustöðum og lykilfólki í aðildarfélögunum dagana 12. og 13. október á Hótel Selfossi.  Ráðstefnan er hugsuð sem liður í undirbúningi að endurnýjun kjarasamninga sem renna út um áramót og er því mikilvægt að þátttakan verði góð og endurspegli þær kröfur sem helst brenna á félagsmönnum.

Auk kjaramálaráðstefnunnar ráðgerir formaður Samiðnar heimsóknir til aðildarfélaganna til að ræða undirbúning kjarasamninganna.