Á fimmta þingi Samiðnar sem lauk nú um helgina var Finnbjörn A. Hermannsson endurkjörinn formaður Samiðnar og Hilmar Harðarson kjörinn varaformaður. Auk umfjöllunar um skipulagsmál Samiðnar fór talsverður hluti þingsins í umræður um kjaramál og komandi kjarasamninga, auk þess sem ályktað var um velferðar- og menntamál. Þingið sátu hátt í eitt hundrað fulltrúar iðnfélaga og iðndeilda af öllu landinu.