Samkomulag um takmörkun verkfallsréttar

 

Samkomulag um takmörkun verkfallsréttar
 
Það er sameiginlegt markmið aðila að færa starfsumhverfi félagsmanna Samiðnar – sambands iðnfélaga nær því sem gildir um aðra starfsmenn Reykjavíkurborgar. Því hafa aðilar komist að samkomulagi um eftirfarandi:
 
Ákvæði 3. kafla laga nr. 94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna skulu gilda um ákvörðun og framkvæmd verkfalls félagsmanna Samiðnar – sambands iðnfélaga frá og með gildistöku þessa samnings.
 
 
Reykjavík, 29. desember 2004
 
F.h. Samninganefndar Reykjavíkurborgar        
með fyrirvara um samþykki borgarráðs                      
 
 
F.h. Samiðnar-sambands iðnfélaga
með fyrirvara um samþykki félagsmanna