Á fundi miðstjórnar Samiðnar í dag 15. nóv. var samþykkt eftirfarandi ályktun:
Miðað við þær tillögur sem fyrir liggja vegna endurskoðunar á kjarasamningum telur miðstjórn Samiðnar ekki rétt að formaður Samiðnar gefi samþykki sitt fyrir þeim. Miðstjórnin bendir á að í landinu er mikið góðæri en um 40% launþega búa við kaupmáttarskerðingu á sama tíma og stórir hópar eru að taka til sín miklar launahækkanir.
Miðstjórnin telur að gera þurfi eftirtaldar breytingar á fyrirliggjandi tillögum:
a. Launahækkunin komi sem % á laun.
b. Þakið á atvinnuleysisbótum verði hækkað og tímabilið sem atvinnuleysisbætur eru sem % af launum verði lengt.
c. Inn í lög um starfsmannaleigur komi skýr ákvæði um ábyrgð notendafyrirtækjanna.
d. Tryggt verði að jafnræði verði milli lífeyrissjóða vegna fyrirhugaðra þátttöku ríkisins í greiðslu örorkubóta.
Miðstjórn Samiðn harmar að ekki skuli vera samstaða innan ASÍ um að tryggja launafólki stærri hlut af góðærinu sem er í landinu.