Ályktun vegna viðgerða á varðskipum

Miðstjórn Samiðnar lýsir yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun Ríkiskaupa um að hafna tilboði Slippstöðvarinnar í viðgerðir á Ægi og Tý og taka pólsku tilboði, þar sem munurinn á tilboðunum var óverulegur. Ákvörðunin lýsir fyrst og fremst metnaðarleysi íslenskra stjórnvalda fyrir hönd íslensks iðnaðar og skort á vilja til að halda verkefnum í skipaiðnaði í landinu. Miðstjórnin bendir á að ekki liggi fyrir að þurft hafi að bjóða verkefnið út á EES. Einnig vill miðstjórn benda á að aðrar þjóðir beita ýmsum leiðum til þess að halda mikilvægum verkefnum í landi þrátt fyrir tilvist samningsins. Miðstjórnin lýsir yfir ánægju sinni með að íslenskur skipaiðnaður skuli standast erlend tilboð frá löndum sem hafa aðgang að ódýru vinnuafli eins og tilboð Slippstöðvarinnar sýnir. Einnig bendir fundurinn á að í samanburðinum hefur ekki verið tekið tillit til þess óbeina hagnaðar sem kemur til ef verkið er framkvæmt hér á landi. Miðstjórn Samiðnar skorar á fjármálaráðherra, dómsmálaráðherra og iðnaðarráðherra að beita sér fyrir því að ákvörðun Ríkiskaupa um að taka hinu pólska tilboði verði endurskoðuð og tryggja að viðgerðir á Ægi og Tý fari fram í íslenskum skipasmíðastöðvum. Miðstjórn hvetur alla aðila sem málið snertir að taka höndum saman til að tryggja farsæla niðurstöðu í þessu máli.