Bókun um aukna hlutdeild kvenna í stjórnunarstörfum

Aðilar eru sammála um að stefnt skuli að aukinni hlutdeild kvenna í stjórnun­arstörfum í fyrirtækjum.

Jafnhliða þessu er stefnt að því að konur takist á hendur ábyrgðarmeiri og hærra launuð störf.

Aðilar eru sammála um að skipa viðræðuhóp, sem skoði hver þróun launa­munar karla og kvenna hefur verið, hvað skýri hann og kanni leiðir til að draga úr honum.