Samkomulag um takmörkun verkfallsréttar

Það er sameiginlegt markmið aðila að færa starfsumhverfi félagsmanna Samiðnar – sambands iðnfélaga nær því sem gildir um aðra starfsmenn Reykjavíkurborgar.  Því hafa aðilar komist að samkomulagi um eftirfarandi:

Ákvæði 3. kafla laga nr. 94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna skulu gilda um ákvörðun og framkvæmd verkfalls félagsmanna Samiðnar – sambands iðnfélaga frá og með gildistöku þessa samnings.

Reykjavík, 29. desember 2004

F.h.  Samninganefndar Reykjavíkurborgar         F.h. Samiðnar-sambands iðnfélaga

með fyrirvara um samþykki borgarráðs                       með fyrirvara um samþykki félagsmanna