Viðauki vegna iðn- og starfsþjálfunarnema
a) Orlofsuppbót iðn- og starfsþjálfunarnema skal nema 36,5% af orlofsuppbót skv. 4.2.3
b) Desemberuppbót iðn- og starfsþjálfunarnema skal nema 52,7% af desemberuppbót skv. 1.7.3.
c) Iðnnemar skulu njóta aðildar að lífeyrissjóðum og skulu greiðslur til lífeyrissjóðanna þeirra vegna fara eftir kjarasamningi Samiðnar.
d) Iðnnemar skulu njóta fullrar aðildar að sjúkrasjóði og orlofssjóði sveinafélags og skulu greiðslur til sjúkra- og orlofsheimilasjóðs vera þaer sömu og sveina.
e) Iðnnemar njóti sömu réttinda og hlunninda og ákveðin eru í samningum um kjör sveina í viðkomandi iðngrein svo sem fæðispeninga, fatapeninga nema vinnufatnaður sé lagður til, ákvæða um fjarlægðarlínur o.þ.h. en ekki þeirra, sem áunnin eru eða umsamin fyrir meiri starfsmenntun, sérþjálfun eða ábyrgð sveina. Greiðsla vegna fjarlægðarlínu og hliðstætt greiðast ekki þann tíma sem nemar sækja skóla.
f) Tryggingarupphæðir vegna dauða eða varanlegrar örorku séu þær sömu og kveðið er á um í 6. kafla þessa kjarasamnings.
g) Vinnuveitanda ber að halda af kaupi iðnnema félagsgjaldi þeirra til viðkomandi sveinafélags óski það þess.
h) Veikindaréttur iðnnema: Iðnnemar skulu á hverju 12 mánaða tímabili halda launum í veikinda- og slysaforföllum sem hér greinir:
Fyrstu sex mánuðina, tveir dagar á fullum launum fyrir hvern unninn mánuð.
Eftir sex mánaða vinnu (a.m.k. 1000 stundir), einn mánuður á fullum launum.
Eftir 24 mánaða vinnu (a.m.k. 4000 stundir), einn mánuður á fullum launum og einn á dagvinnulaunum.
Námstími í skóla telst ekki til vinnu í skilningi þessarar greinar.
Starfsþjálfunarnemar – flutningur réttinda á námstíma
Þurfi starfsþjálfunarnemi að flytjast á milli vinnustaða (launagreiðenda) til að ná þeimmarkmiðum sem sett hafa verið um starfsþjálfun hans, skerðir það ekki rétt nemans.
Hann heldur þá áunnum rétti að frádregnum þeim dögum sem hann hefur þegar nýtt sér m.v. 12 mánaða tímabil. Sé samningi slitið af öðrum ástaeðum fellur áunninn réttur niður.
Ákvæði 6.3.3. á við eftir atvikum.
Flutningur réttinda að loknu námi: Iðnnemi, sem heldur áfram störfum hjá sama vinnuveitanda að afloknu sveinsprófi, heldur áunnum réttindum, þó að lágmarki eins mánaðar veikindarétti, að frádregnum þeim dögum sem hann hefur þegar nýtt sér m.v. 12 mánaða tímabil.
Eftir eins árs starf eftir sveinspróf er veikindarétturinn einn mánuður á fullum launum og einn mánuður á dagvinnulaunum. Eftir það fer um ávinnslu skv. almennum reglum.
Fari nemi í vinnu til annars vinnuveitanda eftir sveinspróf fellur áunnin veikindaréttur niður.
Heildarréttur á 12 mánaða tímabili: Réttur til launa vegna veikinda- og slysaforfalla er heildarréttur á 12 mánaða tímabili án tillits til tegundar veikinda.
Vinnuslys og atvinnusjúkdómar: Um rétt til launa í vinnuslysum og atvinnusjúkdómum, sjá gr. 8.
i) Iðnnemar eiga rétt á orlofi og orlofslaunum í samræmi við lög nr. 30/1987 um orlof.
j) Þegar námstíma og bóknámi er lokið, skal neminn fá greitt kaup samkvæmt skilgreiningu starfa viðkomandi sveinasamnings, þar til næsta sveinspróf er haldið. Ef nemi lýkur ekki sveinsprófi á tilskildum tíma færist hann á taxta ófaglærðra starfsmanna.