Bjóðum ungt fólk velkomið til starfa í Samiðn

Nú er að fara í gang hjá Samiðn starf með ungu fólki. Í upphafi felst starfið í að útbúa kynningarefni fyrir Samiðn og aðildarfélögin. Þetta efni verður síðan notað til kynningar í skólum og þar sem ungt fólk er að störfum. Þeir sem taka þátt í starfinu hafa nokkuð frjálsar hendur með áherslur og framsetningu. Hér er því gott tækifæri til að bæta ásýnd verkalýðshreyfingarinnar með ferskum og nýjum hugmyndum.
Einnig er allt opið um önnur verkefni sem hugsanlega mætti taka fyrir, til dæmis að móta tillögur í þeim málum sem snúa að ungu fólki. Samiðn á aðild að erlendum samtökum sem standa fyrir fjölbreyttu starfi fyrir ungt fólk. Um er að ræða norræn, evrópsk og alþjóðleg samtök og hefur sambandið áhuga á að efla það starf með aukinni þátttöku yngri félagsmanna. Full ástæða er til að hvetja unga iðnaðarmenn innan Samiðnar að láta vita af sér ef þeir hafa áhuga á að vera með. Nú er tækifæri til að leggja línurnar í starfinu strax í upphafi.