Golfmót Samiðnar 21. júní

Hið árlega golfmót Samiðnar verður að þessu sinni haldið föstudaginn 21.júní kl. 16 á Golfvellinum Kili í Mosfellsbæ. Mótsgjald er kr. 4.500.

Ræst verður út kl. 16 af öllum teigum í einu. Athugið að mæta tímanlega.

Mótið er jafnframt innanfélagsmót aðildarfélaga Samiðnar og er það opið félagsmönnum Samiðnar og fjölskyldum þeirra.

Skráning er í síma 535 6000 eða í netfangið skrifstofa@samidn.is og þarf að gefa upp forgjöf og hvaða stéttarfélagi viðkomandi tilheyrir.

Takið þátt í skemmtilegu móti og látið vinnufélagana vita!