Mótmælt á Austurvelli 10. september

ASÍ, BSRB og KÍ hafa efnt til mótmæla á Austurvelli þriðjudaginn 10. september. Þar á að mótmæla skeytingarleysi stjórnvalda gagnvart hárri verðbólgu og vöxtum.

Boðað er til mætingar klukkan 16:00 en formleg dagskrá hefst kl.16:30.

Ræðufólk:

  • Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ  
  • Sonja Þorbergsdóttir, formaður BSRB
  • Halla Gunnarsdóttir, varaformaður VR
  • Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis  

Tónlistaratriði:

  • KK
  • Andrea Jónsdóttir (DJ)

Fundarstjórn annast Ragnar Þór Ingólfsson, varaforseti ASÍ.

Tilkynningu sem send var út fyrir helgi má sjá hér fyrir neðan:

Mótmælum á Austurvelli 10. september!

Þrálát verðbólga og háir vextir hafa haft alvarlegar afleiðingar á fjölda heimila landsins vegna síhækkandi verðs á nauð­synja­vörum og hús­næðis­kostnaðar. Ástandið bitnar verst á þeim sem minnst hafa á milli handanna og rannsóknir sýna að fólk ber ekki von til að ástandið lagist í bráð.

Þrátt fyrir að þetta hafi verið brýnasta viðfangsefni stjórnvalda síðustu ár hafa þau með athafnaleysi sínu neitað að axla ábyrgð á efnahagsástandinu og eftirlátið Seðlabankanum algerlega hagstjórnina. Skattalækkunum og óvæntum meiriháttar útgjöldum hefur ekki verið mætt með tekjuöflun, eftirlit með markaðsöflum er í skötulíki á meðan fákeppni ýtir undir hærra verðlag. Fögrum áformum um uppbyggingu húsnæðis hefur ekki verið fylgt eftir. Allt ýtir þetta undir verðbólguna og afleiðingarnar eru hátt vaxtastig langt umfram það sem heimilin og fyrirtækin geta borið.

Við sættum okkur ekki við aðgerðaleysið – stjórn­völd verða að sýna sam­stöðu með heimilum í landinu í verki! Strax!

Alþýðusamband Íslands (ASÍ), BSRB og Kennarasamband Íslands (KÍ) boða til mótmæla á Austurvelli þann 10. september næstkomandi, kl. 16:00. Vinnandi stéttir munu þar mótmæla skeytingarleysi stjórnvalda gagnvart hárri verðbólgu og vöxtum. Nú er nóg komið!

Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ