Úrslit í golfmóti Samiðnar

Árlegt golfmót Samiðnar fór fram á Húsatóftavelli í Grindavík laugardaginn 23. ágúst sl. Mjög góð mæting var á mótið þrátt fyrir nokkuð krefjandi veður. Völlurinn í Grindavík var í frábæru standi, öll þjónusta á golfvellinum til fyrirmyndar og boðið upp á ljúffengan mat.

Ræst var út kl. 9:30 og leikin punktakeppni með og án forgjafar.

Eftir hringinn var boðið til veislu í golfskála Golfklúbbs Grindavíkur. Að því loknu fór fram verðlaunaafhending.

Verðlaunahafar voru sem hér segir:

Með forgjöf:

  1. Gunnar Karl Gunnlaugsson
  2. Ólafur Einar Hrólfsson
  3. Vilhjálmur Steinar Einarsson

Með forgjöf (kvenna):

  1. Sigríður Svava Rafnsdóttir

Án forgjafar:

  1. Páll Halldór Sigvaldason
  2. Sigríður Svava Rafnsdóttir
  3. Kári Rúnar Jóhannsson
  • Nándarverðlaun á 2. braut hlaut Sindri Snær Jónsson
  • Nándarverðlaun á 5. braut hlaut Hólmfríður G. Kristinsdóttir
  • Nándarverðlaun á 7. braut hlaut Sindri Snær Jónsson
  • Nándarverðlaun á 14. braut hlaut Snæbjörn Þ. S. Kjerúlf
  • Nándarverðlaun á 16. braut hlaut Guðmundur Vignir Óskarsson

Golfnefnd Samiðnar þakkar bæði þátttakendum og velunnurum sambandsins kærlega fyrir þeirra þátt í að gera þennan dag að veruleika.